• Einn poki (375 gr) af Hälsans Kök Bitar á la Kyckling
  • 1 dl ljós soya sósa
  • 2 msk hunang
  • ½ haus af kínakáli
  • 100g spergilkál
  • 6 stk minimaís
  • 1 stk rauð paprika
  • 1 hvítlauksgeiri
  • ½ rauður chili
  • Sesamolía til steikingar (má nota venjulega olíu)

Aðferð

Fínhakkið chili og hvítklauk og skerið annað grænmeti í strimla. Hitið olíu í wok pönnu eða annari steikarpönnu og setjið kjúklingabita og hrærið af og til. Setjið grænmeti í og steikið áfram í nokkrar mín. Lækkið hitan og hellið soyasósu og hunangi í. Gott er að saxa kóríander og setja í réttin og bera fram með núðlum eða hrísgrjónum.

 

Gott ráð: spergilkálið er gott að létt sjóða á undan áður en það er steikt. Einnig er hægt að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum hverju sinni.